Tímagjald pr. klukkustund......................................................................................................................... 4.600 kr.

Afsláttarþegar tímagjald, 25% afsláttur................................................................................................... 3.450 kr.

Gjald fyrir morgunhressingu, kr. á mánuði ............................................................................................ 2.800 kr.

Gjald fyrir heitan mat, kr. á mánuði ........................................................................................................ 5.600 kr.

Gjald fyrir síðdegishressingu, kr. á mánuði ............................................................................................ 2.800 kr.

Annað barn, systkinaafsláttur af tímagjaldi ........................................................................................... 50 %

Fleiri börn, systkinaafsláttur af tímagjaldi, hvert barn eftir annað barn ............................................ 100 %

Viðbótar 15 mín, fyrir kl. 08:00 og eftir kl. 16:00.................................................................................... 2.450 kr.

Átta tíma vistun með fullu fæði ............................................................................................................... 48.000 kr.

Afsláttarþegar átta tíma vistun með fullu fæði ..................................................................................... 38.800 kr.


Samkvæmt innritunarreglum leikskóla Suðurnesjabæjar er miðað við að börn fái leikskólapláss allt frá 18

mánaða aldri og raðast börn á biðlista eftir fæðingarmánuði barn en ekki eftir umsóknardegi.

Foreldrar með barn undir leikskólaaldri í dagvistun og með annað barn í leikskóla eiga rétt á að

njóta systkinaafsláttar af leikskólagjöldum, að afloknu fæðingarorlofi. Veittur er systkinaafsláttur vegna systkina

sem eru samtímis í leikskóla. Hægt er að sækja um leikskólavistun um leið og kennitala hefur verið skráð í þjóðskrá.

Allir foreldrar/forráðamenn, óháð búsetu, hafa rétt til að sækja um leikskólavist í leikskólum Suðurnesjabæjar en

lögheimilisflutningur verður að hafa átt sér stað við upphaf leikskóladvalar.

Leikskólagjöld eru innheimt fyrirfram. Gjalddagi er 1. dagur mánaðar og eindagi 15. dag mánaðar.

Við tveggja mánaða vanskil má viðkomandi eiga von á að missa af leikskólaplássi.

Forgangur er vegna 5 ára barna.


Afsláttarþegar:
Námsmaður: Er sá sem er í fullu námi eins og það er skilgreint í kennsluskrá viðkomandi skóla.Framvísa þarf staðfestingu um námsvist eftir hverja önn og er afsláttur leiðréttur eftirá.
Öryrki: Sá sem er á aldrinum 18-67 ára og hefur fengið samþykkt örorkumat hjá Tryggingastofnun ríkisins. Framvísa þarf skírteini TR.
Ellilífeyrisþegi: Sá sem uppfyllir skilyrði um lífeyristöku og fær greiddar lífeyrisgreiðslur.
Einstætt foreldri: Er foreldri sem býr eitt með barni/börnum sínum og er ekki í hjúskap.Skila þarf inn staðfestingu um hjúskaparstöðu og búsetuvottorði.