news

Heimsókn í Gerðaskóla

04 Nóv 2016

Hluti af börnunum á Vinakoti fór í skólaheimsókn í Gerðaskóla í dag. Börnin fengu að taka þátt í íþróttatíma með 5.bekk. Farið var í hina ýmsu leiki og skemmtu allir sér vel. Heimsókn eins og þessi er einn hluti af því góða samstarfsverkefni sem á sér stað á milli Gerðaskóla og Gefnarborgar.