news

Dagur leikskólans

06 Feb 2019

Til hamingju með daginn okkar í dag. Í dag héldum við upp á Dag leikskólans og lögðum áherslu á Töfraborg, útisvæðið okkar. Veðrið stoppar aldrei okkur hér í Gefnarborg. Nemendur úr Gerðaskóla komu og lásu ljóð eftir börn á Vinakoti og færum við þeim kærar þakkir fyrir að taka þátt í þessu verkefni okkar. Eins þökkum við öllum þeim sem sáu sér fært að heimsækja okkur og taka þátt í gleðinni.