Öskudagur = Fjör. Já það er búið að vera fjör hjá okkur í morgun. Kötturinn og meira að segja hundurinn líka var sleginn úr tunnunni, dansiball, snakk og pizzur. Þetta gat ekki klikkað.
Fengum aldeils skemmtilega heimsókn í gær þegar Maxímús Músíkús sótti okkur heim. Undanfarnar vikur hafa börnin verið að hlusta á sögur um Maxímús Músíkús og tónlist sem byggir sögum um þessa skemmtilega mús. Maxímús Músíkús er fræðslu- og skemmtiefni fyrir börn se...
Í dag var Dagur leikskólans en þetta er í 13. skipti sem deginum er fagnað með formlegum hætti. Í dag eru einnig 70 ár síðan frumkvöðlar stofnuðu fyrstu samtök leikskólakennara. Að sjálfsögðu fögnuðu börn og starfsfólk Gefnarborgar deginum. Áhersla var lögð á skyn...
Í gær bauð foreldrafélagið upp á fyrirlestur þar sem Pálína Ósk Hraundal ferðamálafræðingur og útivistarkennari flutti erindi um mikilvægi útiveru og skynjunar. Pálína ásamt Önnu Lind Björnsdóttur samstarfsfélaga sínum kom einnig í september síðastliðinn og hélt vin...
Í dag er fyrsti dagur Þorra sem er fjórði mánuður vetrar í gamla norræna tímatalinu. Fyrsti dagur Þorra er nefndur bóndadagur og þá er til siðs hér í Gefnarborg að bjóða feðrum og öfum í morgunverð. Á boðstólum í morgun var boðið upp á hafragraut og ýmsan þorramat...
Fimmtudaginn 11.apríl verður haldinn fjölþjóðadagur hér í Gefnarborg. Að þessu sinni ætla allar deildir að vinna með Sólblóma verkefnið okkar. Hugmyndin að sólblómaleikskólum er komin frá SOS Barnaþorpunum í Noregi. Leikskólinn Gefnarborg hefur verið Sólblómaleikskóli...
Mánudaginn 11.mars næstkomandi er skipulagsdagur í leikskólanum Gefnarborg. Þann dag fara foreldraviðtöl einnig fram þar sem foreldri/foreldrar mæta eingöngu. Hvert foreldraviðtal tekur 20 mínútur og viljum við biðja alla að virða tímann sinn. Að hafa öll foreldraviðtöl á ...
Í dag var öfugsnúinn dagur hjá okkur hér í Gefnarborg. Margir mættu strax í morgunsárið í öfugsnúnum fötum. Nokkrir sátu á gólfinu þegr þeir fengu sér morgunmat. Ekki var annað hægt því borðin voru jú á hvolfi.
Til hamingju með daginn okkar í dag. Í dag héldum við upp á Dag leikskólans og lögðum áherslu á Töfraborg, útisvæðið okkar. Veðrið stoppar aldrei okkur hér í Gefnarborg. Nemendur úr Gerðaskóla komu og lásu ljóð eftir börn á Vinakoti og færum við þeim kærar þakkir...
Hluti af börnunum á Vinakoti fór í skólaheimsókn í Gerðaskóla í dag. Börnin fengu að taka þátt í íþróttatíma með 5.bekk. Farið var í hina ýmsu leiki og skemmtu allir sér vel. Heimsókn eins og þessi er einn hluti af því góða samstarfsverkefni sem á sér stað á mil...